aLmA bJörK

Friday, March 31, 2006

Hnetur hljóta að vera góðar og fitusnauðar því aldrei hef séð feitan íkorna ;)

Friday, March 24, 2006

Ullabjakkk... Ég horfði á þátt í dag sem heitir DR.90210 á sennilega að vera eitthvað tengdur æi hvað hétu þeir aftur þættirnir Beverly hills 90210 æi man það ekki alveg. En anyways þetta var þáttur um lýtalækningar þ.e.a.s það var talað við lækna og við fengum að sjá manneksju sem var að fara í aðgerð og fylgjast aðeins með ;( Mér varð óglatt og alls ekki misskilja mig ég vil vera ungleg og líta vel út og allt það en þetta var nokkrum skrefum og langt fyrir minn smekk. Það var kona þarna sem var sennilega um 60-65 ára og var að fara að gifta sig í 4 skiptið og maðurinn hennar sennilega einhver milli en hún ætlaði sko bara að vera verðlaunagripseiginkona hmmm... hljómar ekkert smá spennandi (lesist er konan þroskaheft?) Anyways hún lét setja einhvera sýra á andlitið á sér og það tók hvorki meira né minna en "aðeins" 3 mánuði fyrir húðina að jafna sig eða "læknast" og hún myndi yngjast um einhver ósköpin af árum. Við erum að tala um að efsta lag húðarinn hjá henni var brennt af með sýru!!! Ég spyr er ekki allt í lagi? Og til að toppa þennan þátt að þá var viðtal við einn læknirinn sem er með þráhyggju dauðans um að vera ungur og meiri að segja konan hans var í viðtali og hún er að verða geðveik á manninum. Hann borðar 12 egg á morgnana og það snýst allt hjá honum um að vera ungur og þar sem hann er lýtalæknir verður hann að líta unglegur út því ekki vill fólk labba inn á stofu hjá gömlum sköllóttum kalli og jarijarijar... Í alvöru er fólk að missa það? Ég fékk algjört ógeð á þessu.
Ég ætla sko að eldast vel með því eina sem virkar.. hlátri, jákvæðni og síðast en ekki síst hamingjusöm og frjáls kona með kannski 1-2 hrukkur :)

Wednesday, March 22, 2006

Hvernig ætli það sé að vera með markmið og ná því??? Veit ekki en ég skal láta ykkur vita þegar kemur að því:)

Tuesday, March 21, 2006

Prentkvóti á útsölu... múúhaa já það þarf nú ekki mikið þessa dagana til að gleðja mitt litla hjarta ;) En þið heyrðuð rétt 2 fyrir 1 ekki slæmt tilboð eins gott að nýta það. En þetta er nú eiginlega búið að vera hápunktur síðusta daga...
Annars er ég að fara í próf á morgun í þjóðhagfræði spennó;)
Annars var ég ekkert smá sniðug í gær ætlaði sko aldeilis að vera framtakssöm og fór með bílinn í þvottastöðina sem hefði verið hið besta mál nema í morgun komst ég ekki inn í hann... því ekki vissi ég að það væri spáð geðveiku frosti í dag... nei nei. Arrgg hvað það var kalt í morgun, hvað er eiginlega málið ég hélt ég myndi frosna í hel í ALVÖRU.

Monday, March 20, 2006

Jæja þá er komin ný vika... átti æðislega rólega helgi, smá að læra og síðan bara chill. The TV came back víííhaa, þannig að til að halda upp á það fór ég á vídeoleiguna og náði í alvöru ameríska bleika mynd hmmm....

Saturday, March 18, 2006

Dagur 14 úff.... loksins kl 4 í nótt fengum við blessaða rekstrarbókhaldið til að STEMMA!!! Víííhaa... þannig að svaf til 3 í dag eftir að hafa verið í svefnsvelti í 2 vikur :) Fór reyndar á fimmtudaginn með Ásu sætu á briljant skilnað með Eddu og hún er alltaf mjög fyndin og skemmtileg, gott að komast svona aðeins út úr húsi og fara eitthvað annað en niðri í skóla. Annars er ekkert annað að gerast í mínu lífi þessa dagana nema skólin. Elfa litla sis er að koma heim síðustu helgina í mars og verður brunch hérna hjá mér með þeim og þeirra fylgdarliði, það er víst einvhver heill hellingur af fólki að koma með þeim ;) Það verður bara næs. Reyndar er þetta helgin fyrir próf hjá mér þannig að ég verð sennilega eitthvað á taugum yfir því en allt lagi.

Wednesday, March 15, 2006

Bara snilld.... var að útskýra fyrir Söru um daginn að ég væri í skóla og þyrfti að læra meðan aðrir væru i fríi t.d. um helgar og síðan spurði hún nokkrum dögum seinna.
Mamma hvenær ertu búin í skólanum?
Og ég svara eftir ca 4 ár segi afhverju?
Þá segist hún vera að spá í hvenær við gætum farið í húsdýragarðin, og hvort ég væri til í að koma þá þ.e.a.s. eftir4ár!!!!

Tuesday, March 14, 2006

Blómin slógu í gegn... á eftir að fá einkunn, en það verður athyglisvert :) Annars er ég búin að vera föst í einhverja 9 daga langt fram á nótt í rekstrarbókhaldsverkefni spennandi :( Skólinn er að verða búin, úff er ekki alveg að ná því en byrja í lokaprófunum 4 apríl og er búin 10 apríl jibíííís.
Sara labbaði heim úr skólanum í fyrsta skiptið í dag og ég var að fara á límingunum, vægast sagt. Ég er bara ekki tilbúin í svona miklar breytingar þannnig að ég keyrði á eftir henni og gerði díl við hana að núna fengi hún að æfa sig 1x í viku og ég keyrði ALLTAF á eftir henni ;)

Wednesday, March 08, 2006


Já nú dugar ekkert minna.... er að klára aðferðafræði á morgun og þá er sá áfangi FRÁ!!! En til að klára þetta þá ákváðum við hópurinn minn að á kynningunni okkar á morgun að þá ætlum við að toppa þetta með því að færa þeim rósavönd ;)
Það er hlýtur að vera mjög erfitt að gefa okkur lélega einkunn ;)
Annars er nú samt bara gaman að koma þeim á óvart....

Já Já ég veit "kennarasleikja" en við slepptum eplunum.

Þannig að nú er bara að bíða spenntur og sjá hvað gerist.... múhhhaaa, æi það verður að hafa gaman af þessu. Annars verð ég geðveik.
Byrjaði að horfa á What the bleep to we know.... og ætla að klára hana núna í kvöld spennandi að sjá hvað ég hef um það að segja á morgun. Mikið svakalega er þetta allt brjálaðislega spennandi... ég á bara ekki eftir að ráða við mig ;)

Sunday, March 05, 2006


my pet!



Er komin með "gæludýr".... Endilega leikið við hana og gefið henni að borða :)

Saturday, March 04, 2006

Vá maður ekkert smá skrýtin upplifun... fór í hús sem ég hef nú ósjaldan keyrt fram hjá og óskað þess að væri mitt. En svo komst ég nú að því um daginn ótrúlegt en satt að ég þekki viðkomandi sem býr þarna... ok allt í lagi með það en ég fór í heimsókn, ég upplifði ótrúlega skrýtið. Mig langar alveg að eignast pening og allt það, þurfa ekki alltaf að vera með endalausar áhyggjur af peningum en ég væri ALDREI til í að skipta þarna.. ALDREI.
Ég kom síðan heim í skókassan minn sem er ca 60fm og mér hefur aldrei þótt eins vænt um heimilið mitt og fann að þetta var mitt athvarf og hérna slær hjartað mitt :)
Ekki það að hjartað mitt gæti alveg slegið í 500fm en þá yrði hamingjan að koma fyrst og síðast en ekki síst Guð!!!
Veit annars ekki hvað er að koma yfir mig þessa dagana, er að lifa í auknablikinu, njóta þess i botn og fullt af æðislegu, einlægu og frábæru fólki allt í kringum mig.

Thursday, March 02, 2006

Var að koma heim núna áðan sem er svosum ekki aðalmálið... en fyrir utan eru 2 sjúkrabílar og legg bara bílnum og er svona eins og flestir íslendingar frekar forvitin . Nema hvað svo þegar ég labba inn koma einhverjir 5-6 sjúkraflutningamenn askvaðandi og síðan kemur líka þessi ROSALEGA MYNDARLEGI gaur, veit ekki hvort það er uniformið en ég get svo svarið að hann var mjög flottur. Kom upp og ég held ég sé að fá aðsvif, það er allt í móður, nei heyrðu mér er kalt og það er allt að verða dimmt... ég sé ekki. Vill einhver hringja á sjúkrabíl fyrir mig STRAX!

Wednesday, March 01, 2006


Öskudagur..
Við mæðgur vöknuðum eldsnemma í morgun til að klæða Söru í rokkbúningin :)
Engin smá stemming.....