aLmA bJörK

Wednesday, August 16, 2006

Sit hérna í vinnunni og tel niður... Núna eru bara 3 dagar eftir og mikið rosalega verða þeir lengi að líða. Skrýtið að sumarið sé búið... þetta er búið að vera skrýtið sumar, litla búin að vera á leikjanámskeiðum og ég að vinna og við erum bara alls ekki vanar því við mæðgur þannig að þetta hefur aðeins tekið á taugarnar. Fórum með Helga á leikinn í gær og það var bara mjög gaman. Sara var nú ekki alveg eins spennt og ég bjóst við og var ekki að skilja þetta að hvorugt liðið skoraði ekki mark og til hvers þeir væru eiginlega að hlaupa svona fram og til baka og ekkert að gerast. Litli bróðir kom heim frá Noregi á mánudaginn, gott að vera búin að fá hann heim.

2 Comments:

Blogger Dis said...

Hlakka til að fá þig í heimsókn

11:06 AM GMT-9  
Anonymous Anonymous said...

Ohhh vildi að ég gæti komið með þér að heimsækja Ásdísi og versla.. komast aðeins frá úthverfamömmu jobbinu ;)
En kannski síðar :D
Skemmtið ykkur úber vel í útlandinu :D

1:13 AM GMT-9  

Post a Comment

<< Home