Var að koma heim úr afmælisdinner.... Hún Ragga mín er svo sæt og góð - bauð mér út í afmælismat og afmælisbíó... nammi namm. Síðan er stefnan jafnframt tekin á Hótel Holt í hádeiginu á morgun, borða meira með Herbalifefólkinu mínu.... Gamla gengið að koma aftur. Er bara í nokkuð góðum gír.. rosa gaman í skólanum erum á fullu í verkefnum og fór í dönsku próf í dag... úpps ekki alveg nógu góð í henni .... I don´t understand Anyway lífið og tilveran er dásamleg finnst ykkur það ekki.Annars er bara ekkert merkilegt að gerast í mínu lífi þessa dagana sofa, borða, læra og knúsa Söru mína. Hún er svo sæt og fín.
aLmA bJörK
Friday, February 04, 2005
Thursday, February 03, 2005
Eru konur virkilega erfiðari í samstarfi en karlar... Ég bara trúi þessu ekki. En ég hef alla vega ákveðið að halda mig við strákana og vinna með þeim. Það er einhvern vegin bara auðveldara ekkert bras á þeim. Er allt eitthvað svo ekkert mál og síðan er líka hægt að nota persónutöfrana þar.... Guð minn góður fór í sjoppu í kvöld og ekkert mál, nema svo ákvað ég að fá mér bland í poka og viti menn ég var allt í einu rosa næs við strákin því ég hugsaði með mér þá hlýt ég að fá meira nammi fyrir peninginn..... er maður nú ruglaður á því. Daðrið var heldur betur selt ódýrt þar! Talandi um að vera fátækur námsmaður :) Annars er allt í goodí felling hér - er babyfree um helgina og er að fara í afmælismat með Röggu sætu... afþví ég átti afmæli um daginn æi hún er sæt og góð við mig... gömlu k0nuna. Ég held ég sé að missa vitið er of mikið heima hjá mér... - verð að fara meira út meðal fólks líður eins og steingerving... þetta er nátturulega orðið mjög slæmt þegar maður er farin að daðra við sjoppustrákinn til að fá meira nammi..
Tuesday, February 01, 2005
Hæ hæ aðeins að nota aðstöðu mína. Ef einhverjar af ykkur sem lesa þetta eiga ísl-ens ens-ísl, ísl-dan dan-isl eða ísl-þýs þýs-ísl orðabækur og langar að losna við þær fyrir lítin pening látið mig vita!!! Bráðvantar þessar bækur. Nú skil ég afhverju fólk er að biðja um þetta í fermingargjafir og útskriftargjafir og þar sem ég hef ekki útskrifast enn sem stúdent og bað svo sannarlega um eitthvað allt annað í fermingargjöf þá eru ekki til neinar orðabækur á mínu heimili.... Eða ef þið vitið hvort það er hægt að kaupa notaðar orðabækur einvhersstaðar..... Og Barbara þú þarft að láta mig vita hvenær skírnin verður og ég skal baka 2 kökur og til þeirra sem þekkja til þá hér með skora ég á ykkur skvísur að baka 1-2 kökur ......
