Hlakka til að byrja í skólanum... ekki nema ca 3 vikur í það:)
aLmA bJörK
Friday, July 28, 2006
Wednesday, July 19, 2006
Dagurinn í gær var frekar súr... Litla skottið "týntist" í smá stund, gleymdi að hringja í mig og láta mig vita hvar hún yrði. Rosalega er þetta óþægilegt að lenda í svona og leita svo og finna hana ekki... var alveg við það að fara að hringja i lögregluna. Og alveg til að toppa það þá er ég að hringja í allar mömmurnar og ein þeirra segir mér að hún hafi sagt eitthvað við Söru mína að hún ætti ekki að segja við barnið hennar að hún væri frekudós deginum áður....Já einmitt ég sagði við blessuðu konuna að þetta væri nú ekki alveg tíminn en ég skildi hringja í hana þegar ég væri búin að finna barnið mitt......En þeir sem þekkja til þá fékk ég hroll það var nefnilega þannig þegar ég var lítil þá var mér yfirleitt kennt um allt!!! Ekki það að ég hafi átt þátt í einhverjum bröllum þá vorum við nú yfirleitt nokkkrar saman. Sem endaði með því að hringdi í konuna og tilkynnti henni það að ef hún hefði eitthvað að segja við Söru eða um hana þá skildi hún gera það við mig og engan annan og alls ekki við hana eina og ég ekki viðstödd!! Og jafnframt skildi hún nú aðeins hugsa málið áður en hún gerði eitthvað í þessum dúr því að það þyrfti yfirleitt 2 til og dóttir hennar væri nú ekki svo elskulegasta í hverfinu... Er og verður foreldrahlutverkið svona... talaði svo við mömmu og pabba og þau brostu nú bara út í annað og buðu mig velkomna í sinn heim síðustu 30 ár og hana nú!!!
Annars er komin sól hér á klakanum... gaman gaman. Síðan var bakkað framan á bílinn hjá mér áðan, ekkert alvarlegt en það er sko engin rólegheit hjá mér þessa dagana :) Er farin að vinna og síðan í sólbað.....
