aLmA bJörK

Thursday, June 29, 2006

Kom heim í gær og fyrradag og það er fullt af fólki að flytja heima.... það er góð tilfinning að vera ekki að flytja :) Ætla að sitja sem fastast... Gaman að prófa eitthvað nýtt

Friday, June 16, 2006

Fyndið þetta líf .... you think you know but you don´t!!! Anyways þá er lífið alltaf að gerast og stundum eins og ég hafði séð fyrir og stundum alls ekki, eða ég ekki að bregðast við eins og mig langar. Ég held líka að ég sé svona eða hinseigin og er það svo alls ekki sem er mjög fyndið. Á ég standa upp eða sitja kyrr og bíða??? Það er alveg spurning, þetta eru fyndnar pælingar. Síðan er líka bara hægt að hætta að pæla og hugsa út í eitt og bara gera... gera það sem mig langar :) Sem er líka alveg cool

Wednesday, June 14, 2006

Ein ég sit og sauma inní litlu húsi, engum kemur að sjá mig nema litla músin..... Og þetta væri allt í lagi ef þetta væri ekki satt en því miður þá er þetta NÁKVÆMLEGA svona. Ekkert smá spennandi... við erum að tala um það að á mínum vinnustað vinna ca 400 manns en ég sit í einhverju bakhúsi EIN alla daga - allan daginn!!! Ég er orðin einhverf og heyri raddir.... Hjálp is anybody out there????

Tuesday, June 13, 2006

Ég þoli ekki sumar konur... mér finnst konur asnalegar og í dag skil ég karlmenn þegar kemur að konum! Í alvöru hvað er málið með konur? Þurfa þær alltaf að vera í kattaslag? Þurfa þær stöðugt að vera að sanna vald sitt og passa upp á að ekki sé verið að vaða yfir þær? Þetta er alveg fáranlegt og til að toppa þetta þá fékk ég rosa smart komment í andlitið á mér núna um daginn, frá annari konu... að forstjóri fyrirtækisins sem ég vinn hjá yrði rosaglaður að sjá svona sæta stelpu í móttökunni!!! Er ekki allt í lagi?? EINMITT mitt markmið í lífinu er að vera sæt fyrir einhverja forstjóra, vá hvað ég er heppin.... Ég er ekki að rembast við að fara í gegnum nám og fórna ýmsum hlutum fyrir mig og börnin mín þannig að einhver kjelling segi svo við mig að ég sé sæt!! Mér er skít sama hvort ég sé sæt eða ekki ég vill fá hrós fyrir aðra hluti en það.

Saturday, June 03, 2006

Hæhæ svolítið langt síðan ég bloggaði síðast...er búin með 1 ár í viðskiptafræðinni vííhaaa EKKI NEMA BARA 2 ÁR EFTIR. Guði sé lof að Ásdís er að klára sálfræðina á sko eftir að þurfa á henni að halda. Tala nú ekki um eftir sumarið, byrjaði að vinna, jájá þið lásuð rétt mín bara búin að fá sér svona vinnu frá 9-5 ferlega sniðugt hehe. Ég reyndar ekki unnið fullan vinnudag áður held ég bara hreinlega.... snjallt :) En anyways þá sit ég ein alla daga fyrir framan tölvu og er að verða einhverf og er farin að tala við sjálfan mig og kem mér ekki útúr bílnum á morgnana því mér líður eins og þetta sé í síðasta skipti sem ég heyri tónlist. Mér reyndar bíðst að færa mig um deild en það er eitthvað asnalegt mál í kringum það!!! Það hlítur að lagast trúi ekki öðru enda ekki öll ævintýri vel.. er það ekki? Alla vegana þá ætla ég að taka mig á með bloggið ...farið vel með ykkur þið þessi tvö sem lesið bloggið mitt... hehe bæjó