aLmA bJörK

Monday, January 31, 2005

jæja, héðan úr sveitinni er allt gott að frétta. Það er svona verið að skipuleggja og samræma þetta allt saman. Það er nú bara þannig að þegar maður er vanur að fullur vinnudagur sé frá 8-14 þá eru það heldur betur viðbrigði að vera í skóla frá 8-16 og síðan þurfa að fara heim og halda áfram að læra. Jafnframt er nú að myndast einhver stemming í bekknum, fólk farið að kynnast og allt orðið svona afslappað. Búin að skila 5 verkefnum... ótrúlegt en satt og reyndar hef ég ekki hugmynd um hvernig ég fór að því... Og það virðist nú bara hið eðlilegast mál hjá sumum af þessum kennurum að 5-10% af námsefninu so far skili sér til okkar. Eins og einn kennarinn sagði " hafið þið aldrei verið í skóla" og ég hugsaði með hann hlýtur að halda að við séum svona heimsk en þá sagði hann að það væri mjög eðlilegt að skilja ekki neitt það myndi sennilega skýrast og skiljast betur þegar önnin væri hálfnuð.. Einmitt þannig að ég virðist fitta bara vel þarna inn!

Saturday, January 29, 2005

Munið þið eftir þessum mömmum sem voru illa afskiptasamar??? Dóttir mín var að byrja í fimleikum í dag sem er ekki frásögu færandi.... Ég sat á bekknum og fylgdist með... eða kannksi ekki alveg. Hún átti að gera æfingu í svona rimlum og sneri höndum vitlaust og ég rík inn á gólfið til að sýna henni hvernig á að gera þetta!! Síðan var hún líka að gera æfingu á svona tvíslá og mín byrjar að kalla á dótturina og segja henni að vera með lappirnar beinar og svo framvegis.... Æi þetta er svo skrítið þegar litlu börnin manns eru að byrja lífið maður vill stjórna þessu og vera með í þessu. Þannig að ég tók ákvörðun að í framhaldi á þessu skildi ég keyra hana og sækja hana svo! Héðan í frá ætla ég ekki að (horfa) á hana í fimleikum!!! Annars stóð hún sig eins og hetja og var rosa góð...
Ég þurfti líka aðeins að ná mér niður eftir þetta ævintýri og minna mig á að þetta er tómstund fyrir barnið en ekki keppni!!!! Ómægod er ég ein af þessum mömmum......

Friday, January 28, 2005

Helgarfrí jibíí

jæja loksins komin helgi. Það er nú reyndar ekki eins og mikið verði um skemmtanalíf þessa helgi neybb nú verður maður að ná sér á strik þ.e.a.s læra og læra meira þannig að ég verði hugsanlega komin í takt við hina í skólanum. Gæti þetta verið ástæðan fyrir því að það var ákveðið að smella inn helgi í vikuna??? Þannig að aumir námsmenn eigi séns -

Wednesday, January 26, 2005

"The best time to plan a tree was 20 years ago. The second best time is now"

Ég held ég sé spilasjúklingur en er samt ekki viss. Magga kom í gær og við ætluðum að taka nokkur spil.... sem endaði þannig að Sverrir var farinn að hringja í hana og sár biðja hana að koma heim...... Það gæti verið tákn um að við erum algjörlega ístöðulausar í þessu áhugamáli okkar. Hún fór heim í kringum 2 í nótt. Mikið rosalega var þetta gaman og það er ömurlegt að hætta að spila þegar maður tapar og það sem enn verra að við erum báðar svona þannig að það voru tekin ansi mjörg síðustu spil... Annars er ég bara heima enn einn daginn... púff. En til að laga þetta þunglyndi ætla ég að fá mér amerískar pönnsur og þá lagast allt!

Monday, January 24, 2005

Amerískar pönnukökur

3/4 bolli mjólk
2 egg
1 tsk lyftiduft
3/4 tsk salt
3 mtsk sykur
3 mtsk olía ( ég nota olívuolíu)
1 1/4 bolli hveiti

Blanda öllu saman og hræri vel. Hita pönnuna og set olíu á hana þangað til hún er orðin heit (olían) og helli síðan olíunni út í deigið og hræri. Og byrja svo bara að baka...... Nammi nammi namm

Erfitt þetta líf

Jæja komin aftur í skólan, jibííí... eftir að vera búin að horfa á allar friends seríurnar. Fékk lánaða einhverja ítalalska mynd, á víst að vera eitthvert meistaraverk en ég veit ekki hvort ég er svona shallow - því var fljótlega skipt út fyrir friends. Annars er gott að frétta, lífið hefur sinn vanagang og sonurinn kveikti í ruslageymslunni hjá ömmu sinni!! Ekki gott - Stóðst nú samt ekki mátið og hló ég meina strákar eru strákar en það er eins gott að þetta gerðist ekki heima hjá mér því þar er mjög einföld regla varðandi ruslarennurnar og tunnurnar og hún er. Þær eru nýjar og það stóð jafnvel til að loka þeim þannig að þær myndu ekki skemmast...... Ég meina í alvöru er fólk alveg gengið af göflunum... Ja ef ég hugsaði svona vel um bílinn þá væri lífið einfalt.

Sunday, January 23, 2005

Dagur 8

Er búin að vera lasin í 8 daga og er orðin nokkuð geggjuð á því..... Og hvernig er þetta eiginlega með þetta skólakerfi - maður missir nokkrar daga úr og hvað, jú jú maður verður að leggja ennþá meira á sig(til að dragast ekki aftur úr). Jaa ég hefði haldið að fólk gæti beðið, maður er nú einu sinni LASIN..... En anyway fer í skólan aftur á morgun... Jibbííí

Friday, January 21, 2005

Blogg

Hi hi er alveg glær í þessu blogg dóti. Þannig að þetta er fyrsta prufan. ...