aLmA bJörK

Tuesday, October 18, 2005

Íha.... jæja nú eru miðannaprófa að verða búin og aðeins 1 próf eftir..... stjórnun - fer nú létt með það híhí (eins og ég hafi æðislega góða stjórn yfir mínu eigin lífi NOT) Annars fór ég í ræktina í dag og fékk þvílíkt góða útrás... bara allt í einu var ég með þvílíkt mikla orku og hljóp og hjólaði í ca 90mín annað eins hefur ekki gerst og tók svo þokkalega á maganum :)
Og ég get svo svarið það að þetta hefur ekkert smá góð áhrif á skapið ég nenni engan vegin að æsa mig yfir einu né neinu, kannski hef ég verið svona svakalega gröm og pirruð og þess vegna fékk ég þessa líka þvílíku orku, anyways þá er ég búin að vera ljúf eins og lamb síðan fyrri partinn í dag :)

Thursday, October 13, 2005

jæja búið að vera svolítið langt síðan ég lét í mér heyra.... Er búin að vera á kafi í verkefniu og miðannaprófum. Verð nú samt að viðurkenna að ég er ekki heltekin/gagntekin af lestri, það væri þá helst að ég hugsa alltof mikið um það, ég er sennilega sek um það en ég verð seint kosin lestrahestur Háskóla Reykjavíkur :) Annars tek ég ákvörðun ca einu sinni á dag að taka mig taki vera algjör "Super mom" og læra/lesa allt sem á að gera og vera "on top of things", borða hollt, taka til heima hjá mér, setja í þvottavélina og ganga frá þvotti, fara í ræktina en svo hugsa ég mig vel og vandlega um og kemst að þeirri niðurstöðu að þetta virðist rúlla og ekki vill ég rugga bátnum...