aLmA bJörK

Friday, March 24, 2006

Ullabjakkk... Ég horfði á þátt í dag sem heitir DR.90210 á sennilega að vera eitthvað tengdur æi hvað hétu þeir aftur þættirnir Beverly hills 90210 æi man það ekki alveg. En anyways þetta var þáttur um lýtalækningar þ.e.a.s það var talað við lækna og við fengum að sjá manneksju sem var að fara í aðgerð og fylgjast aðeins með ;( Mér varð óglatt og alls ekki misskilja mig ég vil vera ungleg og líta vel út og allt það en þetta var nokkrum skrefum og langt fyrir minn smekk. Það var kona þarna sem var sennilega um 60-65 ára og var að fara að gifta sig í 4 skiptið og maðurinn hennar sennilega einhver milli en hún ætlaði sko bara að vera verðlaunagripseiginkona hmmm... hljómar ekkert smá spennandi (lesist er konan þroskaheft?) Anyways hún lét setja einhvera sýra á andlitið á sér og það tók hvorki meira né minna en "aðeins" 3 mánuði fyrir húðina að jafna sig eða "læknast" og hún myndi yngjast um einhver ósköpin af árum. Við erum að tala um að efsta lag húðarinn hjá henni var brennt af með sýru!!! Ég spyr er ekki allt í lagi? Og til að toppa þennan þátt að þá var viðtal við einn læknirinn sem er með þráhyggju dauðans um að vera ungur og meiri að segja konan hans var í viðtali og hún er að verða geðveik á manninum. Hann borðar 12 egg á morgnana og það snýst allt hjá honum um að vera ungur og þar sem hann er lýtalæknir verður hann að líta unglegur út því ekki vill fólk labba inn á stofu hjá gömlum sköllóttum kalli og jarijarijar... Í alvöru er fólk að missa það? Ég fékk algjört ógeð á þessu.
Ég ætla sko að eldast vel með því eina sem virkar.. hlátri, jákvæðni og síðast en ekki síst hamingjusöm og frjáls kona með kannski 1-2 hrukkur :)

2 Comments:

Blogger Dis said...

1-2 hrukkur! Ég tel þig nú bara góða ef þú nærð því. Ég held að ég sé nú komin með fleiri en 1-2 hrukkur. Ef ég ætla að hala því verð ég líklega að fara í BOTOX. Ég held samt ég reyni að líta á hrukkurnar sem karakter einkenni. Meiri hrukkur...meiri persónuleiki. LOL

11:52 PM GMT-9  
Blogger Anna said...

ég hélt kannski að þessir þættir væru um Kelly og Brandon og Brendu og verið að gera þau ung aftur eins og þau voru í 1. seríunni! hehehe díjók!

8:01 AM GMT-9  

Post a Comment

<< Home