aLmA bJörK

Thursday, October 19, 2006

Hvað gerir þú við tímann?

Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana,
fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með konunni, rölti
niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum
mínum.

Ég get gefið þér góð ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er ráðgjafi með MBA
frá Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla
og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú
keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í
gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp
verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér
heldur getur flutt suður.

Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn.

Svona 20-25 ár.

En hvað svo? spurði fiskimaðurinn.

- Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag
og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með marga milljarða.

- Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo?

Reykvíkingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið
fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin,
tekur "siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér
vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!