aLmA bJörK

Tuesday, June 28, 2005

jæja það fer bara rosavel um mig hérna með öllum hinum unglingunum...hehe. Held að þetta séu allt ungir krakkar að flytja að heiman sem búa hérna í blokkinni en það er allt í lagi heldur mér ungri, er að flytja af elliheimilinu í holtinu. Er að spá í að fá mér bleika expressó kaffivél, er þessa dagana alveg að fíla bleikt kannski er stelpan í mér loksins að koma í ljós, það er líka löngu tímabært að ég splæsi í eina kaffivél væri sennilega löngu búin að safna fyrir henni ef ég væri ekki alltaf á kaffihúsum... Núna eru bara nokkrir dagar þangað til Ásdís og Ingimar flyta til Árhúsa hmmm það verður tómt hérna á klakanum án þeirra... en ég ætla að kíkja í heimsókn til þeirra í ágúst og síðan er svo ódýrt að fara á milli. Á eftir að sakna hennar alveg rosalega.

Monday, June 13, 2005

Æi það er svo langt síðan í skrifaði síðast.... Það er rosagott að frétta af mér. Búin með prófin og náði öllu jibííí og var að fá inn í Viðskiptafræði í Háskóla Reykjavíkur, þannig að nú er bara að byrja að lesa og undirbúa sig fyrir haustið. Sara verður hjá pabba sínum í allan júní þannig að ég hef allan tíma í heiminum útaf fyrir mig. Er algjörlega búin að missa mig á línuskautum.... er í 4-5tíma á dag og stefnan er tekin á kúlurass í sumarlok (göfugt markmið!) Er flutt í stúdentagarða, þetta eru 2 blokkir í skipholtinu og við erum að tala um að það eru 44 íbúðir fullar af ungum krökkum nýfluttum að heiman og djamm um hverja helgi... Æðislegt :(