aLmA bJörK

Saturday, November 26, 2005

Það verður að segjast að ég fæ allt ég þarf en ekkert af því sem mig langar í þessa dagana.... en það er bara gott.
Er búin að vera með og verð með næstu daga samviskubit (alveg ótrúlegt) er meiri að segja með móral yfir að vera að skrifa í bloggið mitt því ég gæti verið að læra eða hringt í Söru.... en anyways þá fór ég að pæla hvað tími skiptir öllu máli. Einu sinni þekkti ég konu sem sagði að tími væri peningar.... hafði hún rétt fyrir sér? Það er alveg spurning... Akkúrat núna finnst mér tími það allra mikilvægasta í heimi. Og það er svo undarlegt að þegar við fæðumst er tími og umhyggja það eina sem við viljum..... hefur þú prófað að bjóða viku gömlu barni eina milljón í staðin fyrir að knúsa það og hugga??? Alla vega hefði minni litlu verið slétt sama um þennan pening... og það fyndna við það í dag, hún er 7 ára að henni er líka alveg sama um það í dag... hún vill bara mömmu sína og ekkert annað punktur! Og ég segi það sama fyrir mig mér finnst mjög gaman að fá gjafir og svoleiðis en best þykir mér að eyða tíma með mínu fólki. Og að finna að mínir nánustu taka af sínum tíma til að létta undir með mér.. hlýjar mínu hjarta.
Því ég meina í alvöru við getum alltaf unnið okkur inn meiri pening, fengið lánað eða hvað sem er en það getur engin fyllt upp í þann tíma sem t.d. mig langar með foreldrum mínum, börnum, ættingjum eða vinum. Pældu í því ef værir að fara að hitta vinkonu þína á kaffihúsi og svo kæmir þú og þar sæti bróðir hennar og segði að hann væri komin til að eyða tíma með þér því vinkona þín (systir hans) kæmist ekki!!! En samt gerum við og aðrir þetta með gjöfum til að bæta upp fyrir eitthvað annað...

Og þá fór allt í einu að pæla... það er mun auðveldara að gefa eitthvað sem þú átt nóg af heldur en eitthvað sem þér finnst erfitt að láta frá þér..... anyways ætla að halda áfram að læra fyrir rekstrarhagfræðipróf sem verður á mánudaginn, því tíminn flýgur frá mér ;)

Tuesday, November 15, 2005

jæja þá er afmæli yfirstaðið þetta var ekkert smá notalegt... tók heila 2 tíma:) Kíkti á "djammið" á laugardaginn... það var bara fínt, hittum nokkra stráka úr THÍ á öðru ári í viðskiptafræði og viti menn erum sennilega komnar með aðstoð, borgar sig að fara með Nancy út á lífið. Annars er ég að fara að byrja í prófum og í stað þess að stressa mig upp er ég búin að kanna með endurtekningarprófin og er því töluvert rólegri, það er best að byrgja brunnin áður en ég dett ofan í hann. Litla ljós fer til Sigrúnar vinkonu og verður þar yfir öll prófin, sem er frábært en ég á eftir að sakna hennar og finnst ekkert smá skrítið að senda hana svona í burtu.
Ása vinkona var að eignast litla prinsessu og ég fór í dag og kíkti á hana.... ekkert smá sæt en við skulum hafa það hugfast að þessi kríli STÆKKA og með þeim pælingum gekk ég út alveg laus við að langa í lítið kríli.

Wednesday, November 09, 2005

Ótrúlegt EN satt þá bakaði mín bara 2 súkkulaði kökur, já já það var Betty Crocker ég elska þessa konu!!! Ekki fyrir mig hehe það er fyrir hana Söru mína, hún ætlar með köku í skólan á morgun í tilefni 7 ára afmælis. Hún er nú reyndar að reyna að fara að sofa núna en það er ekki að alveg að ganga! Frekar víruð og spennt múhaa... hlakkar til að eiga afmæli. Ohh hvað ég man þegar manni hlakkaði svona til t.d. afmæli og á jólunum. Það er var ekki fljúgandi séns að fara að sofa, maður iðaði á skinninu úff hvað þetta var erfitt. En svo verður maður stór og úpps og hættir að hlakka til :) Fær mig til að hugsa, hvenær hlakkar mig til þá meina ég alveg þannig að ég iði á skinninu og ligg andvaka og er alveg að bilast? Þetta er góð spurning... Mig hlakkar reyndar alveg rosalega til að klára prófin en ég sef alveg á nóttinni yfir því, ligg frekar andvaka yfir áhyggjum yfir prófunum hehe en anyways... Góð pæling

Sunday, November 06, 2005

Jæja pæja þá er ég búin í fríi.... Vaknaði við þann draum að skólin er búin 12des, þ.e.a.s þá er síðast LOKAPRÓFIÐ. Nú er bara að taka þetta á lokasprettinum. Annars er helgin búin að vera rosa notaleg. Helgi kom óvænt á föstudaginn og var hjá okkur yfir helgina þannig að við erum bara búin að borða yfir okkur og chilla, fórum í kaffi með afa (langafa) og ræddum pólitík og stöðu aldraðra mjög áhugaverðar umræður, alltaf gaman að hitta hann. Annars er ég mikið að hugleiða þetta danmerkur dæmi og hvað ég eigi að gera og hvað mig langi til að gera en það er nógur tími til að spekulera og pæla...

Friday, November 04, 2005

Lífið er frekar blue þessa dagana... fullt af verkefnum sem bíða mín hehe þegar ég kem úr letifríinu (lesist "námsleiði") en vonandi fer ég að koma úr því fríi! Annars verð ég að taka mig hressilega á því nýjasta nýtt, eða kannski ekki svo nýtt er að mig langar að fara í skóla í Kaupmannahöfn CBS heitir hann og því er betra að vera með þokkalega meðaleinkunn þannig að ég hafi séns á því. Annars hefur mig alltaf langað að flytja til útlanda og núna er alveg kjörið að drífa í því. Væri líka gaman þar sem pabbi býr þarna þannig að ég yrði nú ekki alveg úti á túni og síðan er Ásdís í Árhúsum þannig að þetta er allt hið besta mál...

Tuesday, November 01, 2005

Múhaa.... Já já ég skal lofa að blogga meira. Lífið er búið að vera frekar súrt, ég er búin að vera haldin leti dauðans, nenni ekki að læra og þegar ég er farin að sjá heimilisþrifin í hyllingum og hlakka til að þrífa heima hjá mér þá er það alveg pottþétt flótti frá einhverju öðru og í þessu tilfelli lærdómi.
Ég er búin að komast að því að sumt fólk er bara gjörsamlega úti á túni... með hin ýmsu mál! Og ég uppgötvaði í gær að ég gefst upp!!! Og hana nú ég nenni ekki svona fólki anymore - Ef fólk sér ekki að það er eitthvað "meiri háttar" athugavert við sitt hegðunarmunstur þá held ég að ég sé ekki að fara að breyta því eða opna huga þeirra, búin að reyna way to much - my time is over!! Þannig að nú ætla að snú mér að öllu skemmtilegri málum... Ég er að skora á vinkonu mína(hehe segi ekki hver, hmm) að koma og fá sér kaffilatte og sígó með mér og vonandi sé ég hana fljótlega ( því það kæmi sér líka vel varðandi þrifin heima hjá mér, því nú er svo fínt :) En ég sakna hennar alveg heil ósköp - "komdu heim - komdu heim" Við systurnar fórum út að borða á föstudaginn í tilefni að við áttum báðar 30 ára afmæli á þessu ári... það var svaka næs, sátum á rosa nice veitingastað og bilað vetraveður fyrir utan, það er svo huggulegt. Síðan er ég að "skipuleggja" 7 ára afmælið hennar Söru og eins og sannri móður sæmir pantaði ég "Afmæli í Ævintýralandi" ohh ég elska svona fyrirtæki/skemmtidót eitthvað. Hún er rosaspennt og hlakkar til og þá er ég sátt. Anyways endilega skrifið í comment þannig að ég sjái hvort einvher er að lesa bullið í mér.... Take care