aLmA bJörK
Friday, September 30, 2005
Wednesday, September 28, 2005
Einhver sagði að eitt góðverk á dag kemur skapinu í lag... hmmm veit nú ekki með það. Var í róleg heitum að keyra upp Hverfisgötuna í dag og sé þá að bíll er að koma útaf bílastæði og ákveð í góðmennsku minni að hleypa honum, hefði nú betur sleppt því hans vegna... því að ekki nóg með það að maðurinn þakkar mér fyrir og brosir þá er hann að tala í símann sinn og keyrir á bílin sem kom úr hinni áttinni úpps... Ég horfi á þetta og keyrði í burtu í rólegheitum... Nei svona í alvöru var alveg miður mín, hann hefði verið betur settur ef ég hefði nú bara sleppt því að hleypa honum...
Tuesday, September 27, 2005
"Other people's opinion of you does not have to become your reality" Nákvæmlega og ég tala nú ekki um ef þetta fólk er nú kannski ekki með allar blaðsíðurnar í bókinni... þið skiljið hvað ég við. Ég hef ákveðið að hætta að taka mark á sumu fólki og þeirra skoðunum á mér. Alla vega þá er ég orðin rosalega þreytt á skoðunum fólks og sérstaklega fólki sem er nú ekki alveg að slá í gegn sjálft. Afhverju þurfum við stöðugt að vera með skoðun/álit á öðrum? Er það okkar eigið óöryggi? Þurfum við sífelt að miða okkur við aðra til að vera viss um okkur sjálf?
Anyways... þá ætla ég bara að vera ég og segja það sem mér finnst - þegar mér finnst það.... og ef það er einhver vitleysa þá kemst ég bara að því seinna og leiðrétti það þegar ég veit betur, ef svo óheppilega vill til...
Annars ætla ég að halda upp á það að ég er 8 ára í dag "Hún á afmæli í dag" með því að fá mér nachos og ostasósu, já, já með tímanum minnka kröfurnar og gæði lífsins breytast:)
Friday, September 23, 2005
Einhverja hluta vegna eru flestir dagar bara eins.... Er svona að venjast að vera í háskólanum, já já allt tekur þetta sinn tíma. Og þeim samnemendum mínum sem eru eitthvað að flýta sér að lesa og gera ÖLL þessi verkefni segi ég nú bar "með hægðinni hefst það" og " þetta er langhlaup EKKi spretthlaup". Já það hefur nú ekki beinlínis vantað réttlætingarnar í mínu lífi... þannig að því sögðu viðurkenni ég góðfúslega að ég kom ALLS ENGU í verk nú í kvöld hehe... nema þá að borða ostasósu með smá flögum og var sko ekkert að flýta mér, naut þess í botn. Ég verð reyndar aðeins að fara að herða mig í þessum bókalestri, hugsa mikið um það en það eru sennilega ekki margir sem hafa hugsað sig í gegnum þessar bækur.....
Annars er orðið ÖMURLEGT að fara í skólan á morgnana.... ojbarasta hvað það er orðið ískalt hér á klakanum, brr brr....
Thursday, September 22, 2005
Ennþá svona að koma mér fyrir í skólanum og finna út hvaða borð er best að sitja við t.d. í hádeigimatnum... og svei ég hef algjörlega verið á röngum stað. Mér til mikillar skemmtunar settist ég í dag á nýtt borð. Viti menn það voru allar helstu upplýsingar um karlskyns nemendur háskólans að finna þar. Hverjir eru skitptinemar og hvaðan og hverjir eru á lausu og hverjir eru flottu strákarnir og hvað þeir heita.... Tja þetta var skemmtilegasta hádeigishlé hingað til :)
Annars er að hellast yfir verkefna tíð og próf á næstu 2vikum... Svakalega gaman :) Annars er ég alveg ofsalega ánægð með að hafa drifið mig í skóla og hæst ánægð með þetta nám og sjálfan skólan. Og annað að þetta hefur líka nýst mér vel í fjármálum, og ekki misskilja - námslánin eru ennþá lág en þar sem engin tími gefst fyrir búðarráp þá verður þetta að teljast hagkvæmur kostur fyrir konu eins og mig, Stórsparnaður!
Wednesday, September 21, 2005
Tja og hver sagði svo að rekstrarhagfræði væri leiðinleg... Hún er það sko ekki, aðalmálið er bara að skilja hana. T.d pældi ég í því "hvernig hugsar fólk á jaðrinum?" Hmmm... og ég hugsaði með mér það hlýtur að vera eitthvað svona ferlega hugsandi fólk, sem spara og stuff like that... NOT það er fólk sem hugsar dæmið þannig þú ert með 100 þús á mánuði og eyðir þar afleiðandi ekki meira en það... sem sagt "áttar sig á mörkunum". Þá hlýtur maður að velta fyrir sér hvernig og hvar hugsar fólk eins og ég??? Því ég er eins langt frá því að hugsa á jaðrinum og hugsast getur... og ekki mjög líklegt að þessi kúrs komi til með skila sér mikið inn í heimilisreksturinn:)
En snúum okkur þá að öllu alvarlegri málum "strákum/karlmönnum" Svona í fullri alvöru hef ég verið að velta því mikið fyrir mér hvað er vænlegur kostur og hvað ekki. Mjög svipað og kaupa sér tölvu... viltu hafa hitt og þetta í tölvunni, viltu t.d. geta leikið flókna leiki í henni, eða ertu bara að leita að mjög látlausri og einfaldri tölvu sem bara gerir það allra nauðsynlegasta? Svo þarf að sjálfsögðu að passa upp á hvort tölvan sé í ábyrgð og hvað lengi? Ætti maður að kaupa nýja eða notaða... Lendir maður ekki yfirleitt í bölvuðu veseni með notaðar tölvur og er hægt að skila þeim? Og svo er nátturulega þetta: er sniðugt að vera með tölvu á heimilinu? Fer ekki bara allur tíminn í einvhverja tölvuleiki? Það er nokkuð ljóst að ég þarf að íhuga málið vel og vandlega áður en ég kaupi mér tölvu....
Tuesday, September 20, 2005
jæja þá í þetta sinn.... er nú ekki mjög dugleg að blogga. Það gæti verið leti eða það að líf mitt er frekar látlaust og lítið um að vera. Sennilega er það nú seinni kosturinn vakna, borða, fer í skólan aftur heim, stundum fer ég í búðina og ekki sögunni meir...þetta er nú ekki mjög spennandi og frekar takmarkandi til skrifa eitthvað um. Nema með smá undantekningum þegar ég rugga bátnum... hehe þá kem ég mér ýmist í smá eða stór vandræði aldrei engin vandræði. Það verður nú að vera eitthvað til að díla við svona á milli þess sem mér leiðist og þar sem mér hefur nú aldrei fundist neitt sérstaklega skemmtilegt að prjóna eða eitthvað í þeim dúr.... Nýjasta viðfangsefnið eru strákar/karlmenn úff.... mér hefur núna, já þá meina ég núna hef ég lært - nei ég gat ekki lært það í gær eða eftir síðast skiptið sem ég var með skoðun, sem gerist nú ekki ósjaldan að ég mynda mér skoðun á hlutunum og fæ þessa óstjórnlegu löngun til að deila henni með og eða koma henni á framfæri.... en allavega nú hef ég "vonandi" lært að ÞEGJA.... alveg steinþegja, ekki eitt aukatekið orð... þangað til næst þegar þessi skoðanaþörf hellist yfir mig.
Nýjasta nýtt er annars að ég datt inn á þennan frekar skemmtilega pistla vef.... www.deiglan.com og þar eru mjög margir pistlar og greinar, mjög skemmtilegur vefur - mæli með honum...

