Vá maður ekkert smá skrýtin upplifun... fór í hús sem ég hef nú ósjaldan keyrt fram hjá og óskað þess að væri mitt. En svo komst ég nú að því um daginn ótrúlegt en satt að ég þekki viðkomandi sem býr þarna... ok allt í lagi með það en ég fór í heimsókn, ég upplifði ótrúlega skrýtið. Mig langar alveg að eignast pening og allt það, þurfa ekki alltaf að vera með endalausar áhyggjur af peningum en ég væri ALDREI til í að skipta þarna.. ALDREI.
Ég kom síðan heim í skókassan minn sem er ca 60fm og mér hefur aldrei þótt eins vænt um heimilið mitt og fann að þetta var mitt athvarf og hérna slær hjartað mitt :)
Ekki það að hjartað mitt gæti alveg slegið í 500fm en þá yrði hamingjan að koma fyrst og síðast en ekki síst Guð!!!
Veit annars ekki hvað er að koma yfir mig þessa dagana, er að lifa í auknablikinu, njóta þess i botn og fullt af æðislegu, einlægu og frábæru fólki allt í kringum mig.

1 Comments:
Nákvæmlega,ég er í 52.3 fm og líður bara ágætlega.. minna að þrífa! :)
Enda myndi ég ekki vilja búa í villu nema að hafa kellingu til að þrífa! híhí
Post a Comment
<< Home