Púfff búin að vera að læra í dag og nú er svo stefnan tekin á aðþrengdar húsmæður.... jibííí. Sara fór með Ásu og fjölskyldu í ævintýraferð í dag, þannig að ég gæti lært og Sara myndi sá sólina.... Ása kom og sótti hana 10 morgun og það var farið upp í sveit, út að borða, niðri í fjöru, í ísbúðina og síðan til að setja punktin yfir iið.. þá meiddi hún síg aðeins á hnéinu og það blæddi og þá vildi litla sæta bara fara heim og láta mömmu kyssa á sárið. Griluðum síðan og mikið svakalega var borðað, verð að biðja Ásu og co að koma að grilla oftar nammi nammi namm.... Pakksödd og sæl og er tilbúin í að massa þetta vísindaenskupróf sem er í fyrramálið, er bara á taugum yfir því að sofa yfir mig, það væri svo ég... búin að biðja alla sem ég hef hitt í dag að hringja í mig í fyrramálið og vekja mig, það ætti að duga
aLmA bJörK
Thursday, May 05, 2005
Wednesday, May 04, 2005
jæja fór í dag að leita að rótum mínum og vonandi finn ég ræturnar fljótlega.... alveg ómögulegt að vera svona rótarlaus. Annars er ég búin að vera eitthvað slöpp, ákvað að bíða með stærðfræðiprófið sem átti að vera í dag.... og fara bara í sjúkraprófið. Fór í góða veðrinu og fékk mér stóran ís með Söru minni.... Ætla að fara að læra undir vísindaensku sem er reyndar alveg hundleiðinleg sérstaklega í ljósi þess að ég hef engan áhuga á vísindum.... en engu að síður verð að kunna hana alla vega fram að hádeigi á föstudag og síðan get ég gleymt henni og notað plássið í heilanum undir eitthvað annað sniðugra.
Tuesday, May 03, 2005
Var að horfa á Queer eye for the straight guy..... rosalega væri ég nú til að fá svona gengi heim til mín.... öllu breytt og loksins myndi ég finna föt sem pössuðu og sennilega myndi ég nenna í líkamsrækt í kjölfarið... hver veit? Annars er ég að drukkna í prófum og fékk ekkert smá taugaáfall eftir fyrsta prófið. Ég hugsaði bara með mér ég verð þá bara hér aftur eftir nokkra mánuði, það er það versta sem gæti gerst. Fór líka að hugsa í dag, rosalega væri það nú fínt ef ein önn væri nú bara 2 annir. Þá gæti ég lært þetta allt og skilið þetta mikið betur.
Litli engillinn minn er algjör dúlla, kom frá pabba sínum um daginn og kvartaði yfir því að við værum ekki saman og það gengi bara alls ekki því þegar þú hún færi til hans þá myndi hún ekki alltaf að kalla hann pabba heldur kallaði hann mömmu og eins þegar hún kæmi heim að þá kallaði hún mig pabba. Þannig að til að leysa þetta mál með hver væri hvað að þá ættum við bara að byrja saman aftur og þá væri þetta allt miklu auðveldara... hehe og við ættum að búa heima hjá pabba því þá gæti hún alltaf leikið við vinkonu sína....
