aLmA bJörK

Wednesday, November 09, 2005

Ótrúlegt EN satt þá bakaði mín bara 2 súkkulaði kökur, já já það var Betty Crocker ég elska þessa konu!!! Ekki fyrir mig hehe það er fyrir hana Söru mína, hún ætlar með köku í skólan á morgun í tilefni 7 ára afmælis. Hún er nú reyndar að reyna að fara að sofa núna en það er ekki að alveg að ganga! Frekar víruð og spennt múhaa... hlakkar til að eiga afmæli. Ohh hvað ég man þegar manni hlakkaði svona til t.d. afmæli og á jólunum. Það er var ekki fljúgandi séns að fara að sofa, maður iðaði á skinninu úff hvað þetta var erfitt. En svo verður maður stór og úpps og hættir að hlakka til :) Fær mig til að hugsa, hvenær hlakkar mig til þá meina ég alveg þannig að ég iði á skinninu og ligg andvaka og er alveg að bilast? Þetta er góð spurning... Mig hlakkar reyndar alveg rosalega til að klára prófin en ég sef alveg á nóttinni yfir því, ligg frekar andvaka yfir áhyggjum yfir prófunum hehe en anyways... Góð pæling

3 Comments:

Blogger Dis said...

Til hamingju með Söru. Ég saknaði þín í dag þegar ég fór í verslunarleiðangur

9:16 AM GMT-9  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með hana Söru......................ég hlakka alltaf gegt til þegar ég er að fara að eignast nýtt barn, og það gerist nú bara nokkuð oft he he og svo hlakkar mig alltaf ( eins sikk eins og það hljómar ) að fara út á kvöldin með kaffibolla og síkó þegar börnin eru sofnuð, og svo hefur mér aldrei hætt að hlakka til jólanna hmmmmm viltu vita eitthvað meir um það sem mér hlakkar til hahahah

9:18 AM GMT-9  
Anonymous Anonymous said...

þetta var sko bara ég hún Hulda Lind kind

9:18 AM GMT-9  

Post a Comment

<< Home