Lífið er frekar blue þessa dagana... fullt af verkefnum sem bíða mín hehe þegar ég kem úr letifríinu (lesist "námsleiði") en vonandi fer ég að koma úr því fríi! Annars verð ég að taka mig hressilega á því nýjasta nýtt, eða kannski ekki svo nýtt er að mig langar að fara í skóla í Kaupmannahöfn CBS heitir hann og því er betra að vera með þokkalega meðaleinkunn þannig að ég hafi séns á því. Annars hefur mig alltaf langað að flytja til útlanda og núna er alveg kjörið að drífa í því. Væri líka gaman þar sem pabbi býr þarna þannig að ég yrði nú ekki alveg úti á túni og síðan er Ásdís í Árhúsum þannig að þetta er allt hið besta mál...

1 Comments:
úff.. þetta skammdegi sem er að byrja núna hefur bara svona áhrif á mann.. maður er nánast aldrei úti þegar það er bjart.. En mér finnst þú svo dugleg í skólanum og ræktinni og að mömmast og allt! Það er nú ekki beint letilíf...
Post a Comment
<< Home