aLmA bJörK

Saturday, January 29, 2005

Munið þið eftir þessum mömmum sem voru illa afskiptasamar??? Dóttir mín var að byrja í fimleikum í dag sem er ekki frásögu færandi.... Ég sat á bekknum og fylgdist með... eða kannksi ekki alveg. Hún átti að gera æfingu í svona rimlum og sneri höndum vitlaust og ég rík inn á gólfið til að sýna henni hvernig á að gera þetta!! Síðan var hún líka að gera æfingu á svona tvíslá og mín byrjar að kalla á dótturina og segja henni að vera með lappirnar beinar og svo framvegis.... Æi þetta er svo skrítið þegar litlu börnin manns eru að byrja lífið maður vill stjórna þessu og vera með í þessu. Þannig að ég tók ákvörðun að í framhaldi á þessu skildi ég keyra hana og sækja hana svo! Héðan í frá ætla ég ekki að (horfa) á hana í fimleikum!!! Annars stóð hún sig eins og hetja og var rosa góð...
Ég þurfti líka aðeins að ná mér niður eftir þetta ævintýri og minna mig á að þetta er tómstund fyrir barnið en ekki keppni!!!! Ómægod er ég ein af þessum mömmum......

1 Comments:

Blogger Dis said...

Frábært, var hún að byrja í fimleikum. Eins og mamma sín í gamla daga. Ég skil vel að þú hafir verið afskiptasöm. Þig hlýtur að hafa kitlað svolítið að vilja rifja upp gamlar gólfæfingar.

12:14 PM GMT-9  

Post a Comment

<< Home