aLmA bJörK

Wednesday, January 26, 2005

Ég held ég sé spilasjúklingur en er samt ekki viss. Magga kom í gær og við ætluðum að taka nokkur spil.... sem endaði þannig að Sverrir var farinn að hringja í hana og sár biðja hana að koma heim...... Það gæti verið tákn um að við erum algjörlega ístöðulausar í þessu áhugamáli okkar. Hún fór heim í kringum 2 í nótt. Mikið rosalega var þetta gaman og það er ömurlegt að hætta að spila þegar maður tapar og það sem enn verra að við erum báðar svona þannig að það voru tekin ansi mjörg síðustu spil... Annars er ég bara heima enn einn daginn... púff. En til að laga þetta þunglyndi ætla ég að fá mér amerískar pönnsur og þá lagast allt!

1 Comments:

Blogger Ally said...

Ómægod!! Ertu að borða pönnsur og býður mér ekki??

8:15 AM GMT-9  

Post a Comment

<< Home