aLmA bJörK

Friday, March 02, 2007

Ég hélt ég yrði ekki eldri í dag kaffið í mötuneytinu upp í skóla hafði EKKI lækkað, já þið lásuð rétt EKKI lækkað. Þeir hafa augljósalega tekið ákvörðun um að stela / ræna nemendur um lækkunina og stinga því í EIGIN vasa. Ekki eins og það streymi ekki nógu mikið þangað dag hvern!!!!!! Það laust niður þeirri hugsun að nú væri nóg komið, hingað og ekki lengra! Mér datt í hug að standa upp á borði og tilkynna fólki að það væri verið að ræna það um hábjartan dag en svo vildi ég nú ekki vera með nein læti og uppistand og þar að auki er ég nú meira fyrir að vinna bak við tjöldin. Sviðsljósið fer ekki vel i mig.

Thursday, March 01, 2007

Allt gott að frétta af mér... Fékk mér kaffi í dag sem er svosum ekkert nýtt, nema að kaffið kostaði 290kr sem er líka allt í lagi nema i gær kostaði það 340!!! Vííí það þurfti nú ekki meira til að gleðja mig. Já svei mér þá, þarna fann ég fyrir lækkun á matarskatt, á kaffibollanum mínum þannig að nú er ég þokkalega spennt að fara að versla . Ákvað nú samt að hinkra aðeins við því ég gerði mér strax grein fyrir því að það kæmi til með að taka lengri tíma en venjulega og auk þess ætla að ég fara þegar það liggur virkilega illa á mér og/eða er í mjög þungu þunglyndi. Því það verður botnlaus gleði að fara í gegnum matvörubúðina :) Því þetta verður eins og með draumin (súkkulaðið) þar sem ég borða alltaf fyrst súkkulaðið og bíð í spenningi eftir lakkrísnum :) Já svei mér finn bara spenningin byggjast upp. Aldrei hlakkað eins til að fara og kaupa í matin. Annars er bara fínt að gera í skólanum, mikið af hópavinnu sem er fínt og þetta eru mikið hópar settir saman af kennurum, þannig að ég er að vinna með fólki sem ég hefði ekki unnið með annars - áhugavert!!! Það er alltaf fullt af skemmtilegu fólki fyrir utan þessar 3 sem ég tala við venjulega ;)

Thursday, October 19, 2006

Hvað gerir þú við tímann?

Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana,
fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með konunni, rölti
niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum
mínum.

Ég get gefið þér góð ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er ráðgjafi með MBA
frá Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla
og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú
keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í
gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp
verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér
heldur getur flutt suður.

Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn.

Svona 20-25 ár.

En hvað svo? spurði fiskimaðurinn.

- Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag
og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með marga milljarða.

- Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo?

Reykvíkingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið
fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin,
tekur "siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér
vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!

Thursday, September 21, 2006

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!

Allir velkomnir aðeins fyrir karla
Ath: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

Fyrri dagur

Hvernig á að fylla ísmolamót?
Skref fyrir skref með glærusýningu
Klósettrúllur vaxa þær á klósettrúlluhaldaranum?
Hringborðsumræður
Munurinn á ruslafötum og gólfi
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
Diskar og hnífapör: fer þetta sjálfkrafa í vaskinn eða uppþvottavélina?
Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar
Að tapa getunni
Að missa fjarstýringuna til makans Stuðningshópar
Læra að finna hluti
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi Opin umræða

Seinni dagur

Tómar mjólkurfernur: eiga þær að vera í ísskápnum eða í ruslinu
Hópvinna og hlutverkaleikir
Heilsuvakt: það er ekki hættulegt heilsunni að gefa henni blóm
PowerPoint kynning
Sannir karlmenn spyrja til vegar þegar þeir villast
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar
Er erfðafræðilega ómögulegt að sitja þegandi meðan hún leggur bíl?
Ökuhermir
Að búa með fullorðnum: Grundvallarmunur á því að búa með mömmu þinni og maka
Fyrirlestur og hlutverkaleikir
Hvernig á að fara með eiginkonunni í búðir
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni
Að muna mikilvægar dagsetningar og að hringja þegar þér seinkar
Komdu með dagatalið þitt í tímann
Að læra að lifa með því að hafa alltaf rangt fyrir sér
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.

Wednesday, August 16, 2006

Sit hérna í vinnunni og tel niður... Núna eru bara 3 dagar eftir og mikið rosalega verða þeir lengi að líða. Skrýtið að sumarið sé búið... þetta er búið að vera skrýtið sumar, litla búin að vera á leikjanámskeiðum og ég að vinna og við erum bara alls ekki vanar því við mæðgur þannig að þetta hefur aðeins tekið á taugarnar. Fórum með Helga á leikinn í gær og það var bara mjög gaman. Sara var nú ekki alveg eins spennt og ég bjóst við og var ekki að skilja þetta að hvorugt liðið skoraði ekki mark og til hvers þeir væru eiginlega að hlaupa svona fram og til baka og ekkert að gerast. Litli bróðir kom heim frá Noregi á mánudaginn, gott að vera búin að fá hann heim.

Tuesday, August 15, 2006

Jæja... allt tekur þetta nú enda og nú eru bara 4 dagar eftir og þá hætti ég í sumarjobinu. Gaman gaman... Eitthvað hef ég nú samt misskilið þetta með að vera í skóla og vinna á sumrin því ég hélt að þá ætti maður að eiga ógeðslega mikið af peningum en svo er nú ekki raunin;( Allt gott að frétta annars, styttist óðum í útlandaferðina ógurlegu en haldið verður til Árhúsa í byrjun sept og þá raskast jafnvægið á bankareikningum eitthvað en það verður bara að hafa það, sumt verður maður bara að láta sig hafa. Hlakkar ekkert smá til að hitta Ásdísi og slappa af og versla :)

Er að fara með krakkana á fótboltaleik í köld Ísland - Spánn það verður gaman.

Friday, July 28, 2006

Hlakka til að byrja í skólanum... ekki nema ca 3 vikur í það:)