aLmA bJörK

Monday, February 13, 2006

Jæja þá í þetta sinn... ég er alveg ferlega ömurlegur bloggari ;) Annars er allt gott að frétta, skellti mér til London í "stelpu ferð" með Ásdísi og við slöppuðum af, fórum í leikhús á Fame og versluðum auðvitað aðeins. Það er alveg hverrar krónu virði að versla með Ásdísi. Hún er þvílíkt yfirveguð og yfirmáta kurteis, en þegar Dísa skvísa kemst í búðir þá breytist hún í eitthvað óarga dýr. Ég verð nú að segja alveg eins og er, já svei mér maður verður bara frekar hræddur! En svona fyrir utan það þá var þetta alveg æðisleg ferð og rosalega gaman að hitta hana... ég kemst alltaf í betra samband við sjálfan mig með því að hitta hana ;)

1 Comments:

Blogger Dis said...

Þetta var æðisleg ferð. Gaman að hitta þig.

12:33 PM GMT-9  

Post a Comment

<< Home