Fékk þetta sent á meili...og fannst alveg eins og ég hefði getað skrifað þetta.
Sjúkket maður, ég er orðin 30 ára :)
Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið! (eða vorum við bara heppin?)
Ég var að spjalla um daginn við vin minn um ,,þá gömlu góðu daga" og við komumst eiginlega að því að fólk sem er eldra en 30 ára ætti í raun að vera dáið.Já,samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og fyrrihluta 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.
Barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm. Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.
Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu Í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika. Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.
Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið. Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat. Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.
Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi!
Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gerfihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.
Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur,en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi? Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það. Viðlékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum maðka. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar.Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar,gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.
Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur. Við stjórnuðum okkur sjálf.
Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.
Það var farið í þrjúbíó á sunnudögum og Andrés Önd var á dönsku,sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í norðurlandamálunum seinna meir. Það var jú ýmislegt annað sagt en Gisp! Og Hva? Í þeim.
Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda.Við áttum frelsi, sigra, ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman.
Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og
reglur um líf okkar sem er okkur sjálfum fyrir bestu.
Við áttum gott líf !

0 Comments:
Post a Comment
<< Home