aLmA bJörK

Sunday, February 26, 2006



Ég er búin að vera lasin síðustu 3 vikur en komst loksins til læknis sem gat gert eitthvað í málunum. En það sem vafðist svolítið fyrir honum var að ég orðin 31árs en er með vatn í eyrunum eins og litlu börnin:) Þannig á föstudaginn fór ég í svæfingu/aðgerð þar sem losað var um vatnið og ef þetta lagast ekki þá þarf að setja rör í eyrun... spennó;) Ekki seinna vænna að taka út barnasjúkdómana...
Annars var fjölskyldu brunch hérna áðan og það bætist aðeins í hópin núna, litli bróðir er búin að vera heima í nokkrar daga og síðan voru krakkar með honum..við vorum alls 11 + hundur þannig að það var svaka stemming. Síðan ætlum við næst að tengja litlu systir í tölvunni þannig að þau geti verið með, núna loksins eftir 3ár að hún er komin með skype ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home