aLmA bJörK

Wednesday, July 20, 2005

Eftir að hafa hneykslast á fullt af fólki sem lætur hafa sig út það að mæta í einhvern sal og kósvitna ásamt fullt af öðru fólki allt í þeim tilgangi að halda sér í formi og hlaupa eins og bjáni á hlaupabretti og hjóla á einhverju "hjóli" þá kom sú stund í mínu lífi að ég sá ekki annan kost í stöðunni en að mæta í "ræktina". Þannig að núna hleyp ég eins og asni á einhverju bretti og lyfti lóðum eins og ég veit ekki hvað.... Ég mundi allt í einu eftir því í dag þegar mamma talaði um við mig þegar ég var yngri og maginn og rassin voru á sínum stað að sá dagur kæmi að ég gæti ekki bara borðað hvað sem er og sleppt því að hreyfa mig, það kæmi til með koma í bakið á mér og ég hugsaði með mér.. hvaða rugl er þetta ég verð alltaf svona fitt og flott:)
En sá dagur rann upp nýlega að eitthvað höfðu þessar líkamspartar skolast til og eitthvað varð að gera...
Annars er ég bara í sumarfríi með Söru og það er rosa notalegt. Skólinn byrjar um miðjan ágúst og sumarið er búið að vera fljótt að líða, fer að heimsækja Ásdísi og Ingimar eftir 2vikur og það verður æði að hitta þau.... Ætlum í Legoland og mér skilst að "nýbúinn" Ásdís sé búin að útvega alla bæklinga af svæðinu og hvað sé hægt að gera og skoða þannig að ég verð í góðum höndum, hún kemur til með skipuleggja þetta vel og vandlega hehe...

2 Comments:

Blogger Dis said...

hlakka til ad sja thig

5:48 AM GMT-9  
Blogger Alma said...

sömuleiðis sæta.... búin að kortleggja allar búðirnar???

12:17 PM GMT-9  

Post a Comment

<< Home